Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 272/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 272/2021

Fimmtudaginn 19. ágúst 2021

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. júní 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júní 2021, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til maí 2020. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), dags. 2. júní 2021, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2020 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur að fjárhæð 73.296 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 3. júní 2021. Með bréfi, dags. 7. júní 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst með bréfi, dags. 21. júní 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. júní 2021. Athugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti 13. júlí 2021.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að innheimtukrafa Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að upphæð 73.296 kr. verði felld niður. Krafan sé byggð á því að kærandi og konan hans hafi fengið borgað fyrir fyrstu fimm mánuði ársins 2020. Í maí 2020 hafi kona kæranda byrjað í nýrri vinnu og þá hafi þau hætt að fá bætur. Það sé eftir það sem endurreiknað sé fyrir restina af árinu þó að þau hafi ekki fengið fyrir næstu fjóra til fimm mánuði því að í október 2020 hafi þau keypt sína eigin eign. Kærandi og kona hans hafi ekki verið svona tekjuhá fyrstu fimm mánuði ársins 2020. Það hafi enga stoð að endurreikna fyrir restina af árinu þar sem það standi ekki fyrir þessa fimm mánuði. Kærandi líti svo á að verið sé að reyna að lækka bæturnar fyrir tímabilið janúar til maí 2020.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) kemur fram að kærandi hafi lagt inn umsókn um húsnæðisbætur, dags. 2. janúar 2017. Hann hafi fengið greiddar húsnæðisbætur frá umsóknarmánuði til maí 2020 og einnig regluleg endurreikningsbréf. Síðasta endurreikningsbréf, dags. 24. apríl 2020, hafi tilgreint þá tekjuáætlun sem stofnunin hygðist byggja á fyrir komandi mánuði þar sem fram hafi komið á hvaða tekjum HMS hafi byggt  útreikning húsnæðisbóta. Þá hafi kæranda jafnframt verið leiðbeint um rétt hans til að andmæla samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, en þar sem engar athugasemdir hafi borist frá kæranda hafi HMS lagt fyrrnefndar áætlanir til grundvallar útreikningi á húsnæðisbótum kæranda.

Þann 2. júní 2021 hafi kæranda verið birt lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2020. Í bréfinu hafi komið fram að eftir endurreikning á húsnæðisbótum hafi komið í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem næmi 73.296 kr. Þá hafi kæranda jafnframt verið leiðbeint um andmælarétt sinn og kæruheimild, sbr. 13. og 26. gr. stjórnsýslulaga, auk þess um heimild til að sækja um niðurfellingu á endurgreiðslukröfu ofgreiddra húsnæðisbóta samkvæmt 22. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur.

Af kæru til úrskurðarnefndar megi ráða að kærandi haldi því fram að endurreikningur vegna lokauppgjörs húsnæðisbóta ársins 2020 hafi ekki verið réttur miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um tekjur kæranda. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörsins hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur á fyrrnefndu ári þar sem tekjur hafi verið vanáætlaðar við útreikning húsnæðisbótanna.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur komi fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðist til umsækjanda og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðist við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr.

Í 1. mgr. 17. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur segi að við móttöku umsóknar skuli HMS áætla tekjur og eignir heimilismanna, 18 ára og eldri, svo lengi sem umsókn haldi gildi sínu. Þá skuli HMS veita umsækjanda kost á að koma að athugasemdum um áætlunina samkvæmt 1. mgr. en geri umsækjandi ekki athugasemdir skuli stofnunin leggja áætlunina til grundvallar útreikningi húsnæðisbóta og greiðsluáætlun samkvæmt 18. gr., sbr. 2. og 3. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Telji umsækjandi áætlunina gefa ranga mynd af áætluðum tekjum og eignum heimilismanna á viðkomandi tímabili skuli hann tilkynna stofnuninni um það innan veitts frests og leggja fram gögn því til staðfestingar eftir því sem þörf sé á að mati HMS, sbr. 4. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar komi fram að HMS skuli gera greiðsluáætlun er byggist á útreikningi húsnæðisbóta samkvæmt 20. gr. laga um húsnæðisbætur. Í greiðsluáætlun skuli koma fram áætlaðar mánaðarlegar greiðslur húsnæðisbóta á því tímabili sem áætlun samkvæmt 17. gr. taki til ásamt öðrum þeim forsendum er útreikningur húsnæðisbóta byggist á. Í 1. mgr. 20. gr. laga um húsnæðisbætur sé kveðið á um útreikning húsnæðisbóta, en þar segi í fyrri málsgrein ákvæðisins að til grundvallar útreikningi húsnæðisbóta hvers mánaðar skuli framkvæmdaraðili leggja einn tólfta af áætluðum tekjum og eignum heimilismanna, 18 ára og eldri, á því almanaksári þegar húsnæðisbætur séu greiddar ásamt fjölda heimilismanna og húsnæðiskostnaði, sbr. einnig 16. til 19. gr.

Í 2. mgr. sömu greinar komi fram að HMS skuli byggja áætlanir sínar á nýjustu upplýsingum á hverjum tíma, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Hér sé átt við nýjustu upplýsingar sem HMS afli um tekjur og eignir heimilismanna úr skattframtölum og staðgreiðsluskrá skattyfirvalda á grundvelli 15. gr. laga um húsnæðisbætur, auk upplýsinga sem umsækjandi hafi látið stofnuninni í té, sbr. 14. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds bendir HMS á að útreikningur húsnæðisbóta byggi meðal annars á fyrirliggjandi upplýsingum um tekjur kæranda sem stofnunin afli frá skattyfirvöldum, að undangengnu umboði hans. Samkvæmt endurreikningsbréfi, dags. 24. apríl 2020, hafi kærandi fengið senda tekju- og eignaáætlun sem hafi byggt á fyrirliggjandi upplýsingum á þeim tíma og hafi tekið mið af heildartekjum, þar með töldum fjármagnstekjum, heildareignum, ásamt orlofs- og desemberuppbót. Í framangreindu bréfi komi fram að kæranda hafi verið áætlaðar 12.134 kr. á mánuði frá aprílmánuði sem hafi komið til greiðslu í apríl- og maímánuðum.

Þegar staðgreiðsluskrá kæranda sé skoðuð megi sjá að tekjuupplýsingar vegna janúar, febrúar og mars 2020 séu þær sömu og notaðar hafi verið til grundvallar í tekjuáætlun, en meðaltekjur fyrir apríl og maí séu hærri sem nemi 150.000 kr. Meðaltal tekna, samkvæmt staðgreiðsluskrá, þeirra fimm mánaða sem um ræði, þ.e. þeirra fimm mánaða sem umsækjandi hafi fengið greiddar húsnæðisbætur, séu því 899.622 kr. sem sé tæplega 60.000 kr. hærri fjárhæð en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Við þessa upphæð leggist svo aðrar tekjur af skattframtali í hlutfalli við leigutíma, 1.331 kr. vegna fjármagnstekna og 7.825 kr. vegna mismunar annara tekna á framtali, miðað við staðgreiðsluskrá.

Eins og áður hafi komið fram hafi HMS sent kæranda bréf þar sem fram hafi komið hvaða tekjuupplýsingar stofnunin hafi byggt á við útreikning húsnæðisbóta og hafi kæranda verið gefinn kostur á að koma að athugasemdum við áætlunina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þrátt fyrir það hafi kærandi í engum tilvikum haft samband við HMS til að andmæla tekjuáætluninni. Þá geti kærandi ekki borið því við að hann hafi verið grandlaus um þær tekjuáætlanirnar sem stofnunin hafi byggt á, enda komi það fram í tölvukerfi húsnæðisbóta að kærandi hafi opnað framangreint bréf þann 1. maí 2020.

Að framangreindu virtu liggi ljóst fyrir að HMS hafi stuðst við staðgreiðsluskrá Skattsins við gerð tekjuáætlunar, en kærandi hafi ekki andmælt þeirri áætlun. Af þeim sökum hafi stofnunin engin betri gögn haft til að byggja áætlun sína á. HMS bendi á að á kæranda hvíli upplýsingaskylda gagnvart stofnuninni um þau atriði sem kunni að hafa áhrif á rétt hans til húsnæðisbóta, samkvæmt 3. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur, og því hafi kærandi átt að upplýsa HMS um að tekjurnar hans væru vanáætlaðar þegar stofnunin hafi sent honum bréf, dags. 24. apríl 2020. Þar sem kærandi hafi ekki brugðist við tekjuáætlunarbréfinu, svo sem með því að framvísa upplýsingum um breytingar á launakjörum, til að unnt væri að leiðrétta tekjur hans, sé það afstaða HMS að kærandi verði að bera hallann af því að hafa ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni samkvæmt 3. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur.

Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur skuli HMS framkvæma lokauppgjör húsnæðisbóta þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. HMS hafi sent kæranda bréf, dags. 2. júní 2021, um niðurstöðu lokauppgjörs húsnæðisbóta vegna ársins 2020. Í bréfinu komi fram að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem nemi 73.296 kr. Þegar lokauppgjörið sé skoðað í samanburði við skattframtal kæranda megi sjá að tekjuupplýsingarnar, sem notaðar séu við endurreikninginn vegna uppgjörsins, séu réttar. Eins og áður hafi komið fram liggi fyrir að tekjur kæranda hafi verið vanáætlaðar við gerð tekjuáætlunar fyrir bótatímabilið apríl til maí 2020 sem rekja megi til þess að HMS hafi ekki haft upplýsingar um hverjar raunverulegar tekjur kæranda yrðu á þeim tíma. Samkvæmt 26. gr. laga um húsnæðisbætur beri umsækjanda að endurgreiða ofgreiddar húsnæðisbætur. Ljóst sé af skattframtali kæranda og niðurstöðu lokauppgjörsins að kærandi hafi fengið greiddar hærri húsnæðisbætur en hann hafi átt rétt á og því beri honum samkvæmt framangreindu ákvæði að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. HMS bendi á að kærandi geti óskað eftir því við stofnunina að semja um fyrirkomulag endurgreiðslunnar, svo sem með greiðsludreifingu. Þá geti kærandi einnig vegna sérstakra aðstæðna, eins og fram hafi komið í lokauppgjörsbréfi til kæranda, sótt um niðurfellingu á endurgreiðslukröfunni, sbr. 3. mgr. 22. gr. reglugerðar nr. 1200/2016.

HMS krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júní 2021, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2020, að fjárhæð 73.296 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekjubreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar 2020 til maí 2020. Samkvæmt tekjuáætlun, sem lögð var til grundvallar við útreikning húsnæðisbóta á því tímabili, voru heildartekjur heimilismanna áætlaðar 865.446 kr. á mánuði Við lokauppgjör ársins 2020 reyndust tekjur heimilismanna vera hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir sem leiddi til ofgreiðslu að fjárhæð 73.296 kr. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júní 2021, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum